01.12.2007 to 17.02.2008

FLICKR-FLAKK OG HELJARSTÖKK

Ljósmyndasafni Reykjavíkur er ánægja að kynna sýninguna Flickr-flakk og heljarstökk sem beinir sjónum sínum að íslenskum ljósmyndurum og ljósmyndaáhugamönnum sem lifa og hrærast í ljósmyndarasamfélaginu Flickr á netinu. Aldrei hefur verið eins auðvelt að koma myndum sínum á framfæri. Það sem áður fyrr tók vikur og mánuði er nú gert á nokkrum sekúndum og er titill sýningarinnar vísun í þessa kúvendingu sem hefur átt sér stað.

Flickr flakk og heljarstökk

Margir segja að ljósmyndun dagsins í dag sé að finna í Flickr-vefnum, sem hýsir myndablogg í milljónatali og er óhætt að segja að hann sé sá vinsælasti sinnar tegundar í heiminum um þessar mundir. Uppgang hans má rekja til gjörbreyttra starfshátta í ljósmyndun sem hafa skapast með tilkomu hins nýja stafræna umhverfis þar sem myndamagninu eru engin takmörk sett og möguleikarnir virðast endalausir. Myndablogg, sem hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár, má skilgreina sem einskonar umgjörð utan um myndir og samskipti þar sem fólk safnast saman, fylgist með þróun verka hvert annars og myndar hópa utan um sameiginleg áhugamál. Tilurð þeirra hefur m.a. gert það að verkum að svið áhuga og atvinnuljósmyndunar skarast á þann hátt að nú er auðveldara að koma sér upp góðri aðstöðu og ná góðum tökum á faginu. Opnast hafa möguleikar á að gera tilraunir með ljósmyndun á háu stigi og nægir að hafa Photoshop og bleksprautuprentara til þess að búa til gæðaprent. Út frá þessu má segja að Flickr hafi gert ljósmyndun lýðræðislegri og storki hugmyndum manna um hvað ljósmyndun er.

Ljósmyndasafn Reykjavíkur bauð íslenskum notendum Flickr að senda myndir á sýninguna inn á Flickr-vefsíðu sem safnið setti upp sl. sumar. Á ríflega tveimur mánuðum voru sendar inn vel á þriðja þúsund myndir sem sýningarnefnd safnsins svo valdi úr. Með umgjörð og umfang sýningarinnar er leitast við að færa þennan netheim yfir á efniskennt form. 85 manns eiga myndir á sýningunni og er henni skipt í nokkra af algengustu Flickr-flokkunum: Daglegt líf, Portrett, Svart/hvítt, Tíska, Tónlist og Umhverfi. Myndir eftir enn fleiri er að sjá á sýningunni því forvali hennar, tæplega 500 myndum, mun verða varpað stafrænt úr myndvarpa á vegg. Hluti sýningarinnar var í októbermánuði settur upp á íslenskri menningarhátíð í Prag, www.islandskypruvan.cz, og vakti þar mikla athygli.

Info

Info

Reykjavík Museum Of Photography

Grófarhús, Tryggvagata 15, top floor

101 Reykjavík

Tel: (+354) 411 6390

Contact

For groups (10+) bookings please send a request to:

Contact

Opening Hours

Opening Hours

Mon-Thu 10:00-18:00

Fri 11:00-18:00

Weekends 13:00-17:00

Christmas & New Year

Closed 24-26 Dec & 31 Dec-1 Jan.

Easter

Closed from Thurs-Mon

First Day of Summer

Closed 20 April

Labour Day

Closed 1 May

Ascension Day

Closed 13 May

Pentecost

Closed 23-24 May

The National Day

Closed 17 June

Admission

Admission

Adults

1,200 ISK

Students with student card

820 ISK

Children (0-17 years)

Free

Disabled

Free

Reykjavík Culture Year Pass

7,450 ISK

City Card holders

Free

Sign up to our mailing list

We will send you information about our events