25.01.2014 to 11.05.2014

Betur sjá augu . . . Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872 - 2013

Á sýningunni Betur sjá augu er að finna ljósmyndaverk eftir 34 konur sem eiga það sameiginlegt að hafa unnið við ljósmyndun hér á landi – flestar sem atvinnuljósmyndarar en einstaka sem áhugaljósmyndarar. Fyrsta konan sem lærði ljósmyndun og starfaði hér á landi var Nicoline Weywadt sem hóf störf sem ljósmyndari á stofu sinni á Austfjörðum árið 1872. Sýningin nær því yfir 140 ára tímabil og eru viðfangsefni ljósmyndaranna eftir því fjölbreytt. Sýningin er afrakstur tveggja ára rannsóknarvinnu Katrínar Elvarsdóttur, ljósmyndara og sýningarhöfundar við Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Þjóðminjasafn Íslands. Ljósmyndirnar valdi sýningarhöfundur út frá fagurfræðilegum forsendum. Lögð var áhersla á myndir þar sem persónuleg sýn og sköpun ljósmyndaranna nýtur sín og sem endurspegla um leið iðjusemi þeirra og áhuga á starfi sínu.

Betur sjá augu

Ljósmyndunum var skipt í þrjá flokka eftir viðfangsefni: landslag/náttúra, fjölskylda/heimilislíf og portrett/mannlíf. Á sýningunni er áhugavert framlag þessara 34 ljósmyndara til ljósmyndasögunnar dregið fram í dagsljósið. Sú staðreynd að ljósmyndararnir eru allir konur kann að hafa haft áhrif á að verk þessi hafa þar til nú í mörgum tilvikum ekki fengið þá athygli sem þau eiga skilið. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands og Ljósmyndasafns Reykjavíkur og er samtímis á báðum stöðum.

Í Myndasal Þjóðminjasafns eru myndir sem flokka má sem fjölskylda/heimilislíf og portrett/mannlíf. Í sýningarsal Ljósmyndasafns Reykjavíkur eru myndir úr flokknum landslag/náttúra.

Bók verður gefin út samhliða sýningunni. Í henni er meðal annars að finna ítarlega grein eftir Lindu Ásdísardóttir um ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 og verk eftir ljósmyndara á sýningunni.

Info

Info

Reykjavík Museum Of Photography

Grófarhús, Tryggvagata 15, top floor

101 Reykjavík

Tel: (+354) 411 6390

Contact

For groups (10+) bookings please send a request to:

Contact

Opening Hours

Opening Hours

Mon-Thu 10:00-18:00

Fri 11:00-18:00

Weekends 13:00-17:00

Christmas & New Year

Closed 24-26 Dec & 31 Dec-1 Jan.

Easter

Closed from Thurs-Mon

Labour Day

Closed 1 May

Ascension Day

Closed 13 May

Pentecost

Closed 23-24 May

The National Day

Closed 17 June

Admission

Admission

Adults

1,200 ISK

Students with student card

820 ISK

Children (0-17 years)

Free

Disabled

Free

Reykjavík Culture Year Pass

7,450 ISK

City Card holders

Free

Sign up to our mailing list

We will send you information about our events