Ólafur Thorlacius- Vatnslitamyndir
Ólafur starfaði um árabil hjá Landhelgisgæslu Íslands sem kortagerðamaður. Hann hefur nú látið af störfum og málar sér til skemmtunnar. Myndefni sækir hann í náttúru Íslands, hafið og sjávarþorpin.
/*php $markup = $content['field_mynd_stor'][0]['#markup']; $markup = str_replace('typeof="foaf:Image"', 'typeof="foaf:Image" class="lightbox"', $markup); $content['field_mynd_stor'][0]['#markup'] = $markup; */?>
Ólafur er fæddur í Reykjavík þann 21. október 1936. Ólafur nam sjókortagerð og sjómælingar og starfaði sem deildarstjóri sjókortadeildar Landhelgisgæslu-sjómælinga frá 1975. Ólafur starfaði einnig sem myndmenntakennari við Hlíðarskóla í nokkur ár sem og á fréttastofu RÚV við grafíska hönnun. Ólafur hætti störfum vegna aldurs árið 2000 og hefur sótt myndlistarnám bæði hjá skóla Kurt Zier og Lúðvík Guðmundssyni sem og fjölda námskeiða í hinum ýmsu myndlistarskólum.