Viðburðastefna
Stefna Borgarsögusafns Reykjavíkur er að auðga menningarlíf borgarinnar með því að bjóða upp á fræðandi, fjölbreytta, skemmtilega og nýstárlega viðburði. Þeim er ætlað að byggja á starfsemi safnsins, styðja við og styrkja Reykjavík sem menningarborg og laða að innlenda og erlenda gesti. Viðburðir verða unnir í samvinnu við einstaklinga og ólíka hópa samfélagsins.
Markmið
- að miðla safnkosti til gesta í gegnum upplifun
- að hvetja til þátttöku og sköpunar
- að laða nýja markhópa að safninu og leggja rækt við fastagesti
- að færa viðburði safnsins út fyrir veggi þess
- að bjóða upp á viðburði sem hafa menntunar- og skemmtigildi
- að varpa jákvæðu ljósi á safnið og styðja þá starfsemi sem þar fer fram
- að eiga í samstarfi við samtök, listafólk og stofnanir og bjóða upp á vettvang til að setja upp viðburði og örva þannig hvers kyns sköpunarstarf
- að leggja áherslu á samveru fjölskyldunnar og þátttöku barna og unglinga
- að bjóða upp á viðburði sem laða að erlenda gesti, þá sérstaklega fjölskyldufólk