Ævintýraeyjan Viðey - Frístund

Saga, náttúra og listir. Viðey er frábær staður til að njóta útiveru í einstöku umhverfi. Þar er upplagt að fara í hópeflisleiki og rannsóknarleiðangra. Við mælum með dagsferð með nesti og skapandi dagskrá. Allir velkomnir.

img_1112.jpg

Aldur: 6-12 ára 

 

.

 

 

HEIMSÓKN Í VIÐEY

Saga Viðeyjar og náttúra gefa grunninn að skemmtilegri útiveru í einstöku umhverfi.

Ath. Heimsóknin er bókuð neðst á þessari síðu. Því næst þarf að bóka ferjuna út í eyjuna hjá Eldingu.

Nestis- og salernisaðstaða er á tveimur stöðum í eynni:
• Hesthúsið er nestisaðstaða sem er staðsett fyrir aftan Viðeyjarstofu. Þar er kolagrill sem gestum er frjálst að nota auk salernis og leiksvæðis skammt frá.
• Viðeyjarnaust er aðstaða fyrir stærri hópa ásamt kolagrilli og salernisaðstöðu. Viðeyjarnaust stendur við fjöru sem gaman er að skoða.